Föstudagur 27. júlí
Um kvöldið lá leiðin í farvel-partý til Önnu og Geira.
Þau eru að flytja til New York.
Fimmtudagur 26. júlí
Í dag lá leiðin aftur til Reykjavíkur, en Hákon hefur verið að vinna í fiski úti á landi í sumar og hlakkaði til að koma aftur að hitta vini og vandamenn.
Miðvikudagur 25. júlí
Dagurinn nýttist í safnaskoðun og fleira.
Þriðjudagur 24. júlí
Í dag fórum við mamma í ferðalag út á land.
Mánudagur 23. júlí
Kláraði að taka íbúðina í gegn og gaf Hjálpræðishernum gömul föt.
Skrapp líka í heimsókn til Ingunnar systur.
Sunnudagur 22. júlí
Dagurinn fór í að taka íbúðina í gegn því bráðum kemur Hákon í bæinn.
Um kvöldið skruppum við mamma á setningu Landsmóts skáta á Úlfljótsvatni.
Forseti Íslands hélt ræðu á hátíðinni.
Talsverð rigning var á svæðinu og höfðu skátarnir grafið nokkra skurði í kringum tjöldin til að drenera vatninu sem mest burt.
Laugardagur 21. júlí
Skrapp í IKEA fyrir hádegi.
Um kvöldið fór ég í veislu þar sem boðið var upp á m. a. humar í chilli- og appelsínusósu og kjúkling.