Föstudagur 30. september
Kl.11 var móttaka í Alþingishúsinu í tilefni útgáfu tveggja bóka.
Kl.12:15 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.13-16 var Tóbaksvarnarþing haldið í húsnæði Læknafélags Íslands, en ég hélt erindi um þingsályktun um aðgerðaráætlun um tóbaksvarnir á þinginu.
Kl.19 hitti ég Geir Flage og Tom, sem eru yfirmenn í norska hernum og voru hér á Natóæfingunni Norðurvíkingur.
Sýndi ég þeim Alþingi.
Síðan skoðuðum við Hörpu og borðuðum á Kexhostel.
Fimmtudagur 29. september
Kl.16:30 sýndi ég fimm Áströlum Alþingi, en þeir eru hér á vegum Rótarýhreyfingarinnar.
Kl.17:30 sótt ég fund þingflokks framsóknarmanna þar sem við gengum frá því að skipa í nefndir þingsins.
Kl.20 fór ég í leikhús og sá skemmtilegt verk, Fólkið í kjallaranum.
Miðvikudagur 28. september
Dagurinn fór í lestur gagna og frágang mála fyrir þingið sem hefst á laugardaginn næsta.
Um kvöldið kom Hákon í mat og ég fór í góðan göngutúr.
Þriðjudagur 27. september
Ók suður um morguninn.
Kl.13:30-17:00 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Mánudagur 26. september
Um miðjan daginn ókum við Húni um Skagafjörðinn.
Seinni partinn lá leiðin á Siglufjörð, en kl.20 hófst félagsfundur hjá Framsóknarflokknum í Fjallabyggð, þar sem kynntur var nýr málefnasamningur og greidd atkvæði um hann.
Málefnasamningurinn var samþykktur.
Sunnudagur 25. september
Kl.13 var dóttir Kjartans Hákonarsonar og Ragnheiðar Sigurðardóttur skírð í Dómkirkjunni.
Var hún skírð afar fallegu nafni, Bergrún Agnes, í höfuðið á báðum ömmum sínum.
Sinni partinn lá leiðin á Sauðárkrók þar sem ég hitti Húnboga.
Laugardagur 24. september
Kl.9:15 var flug á Egilsstaði en þar var fundur Landstjórnar og þingflokks framsóknarmanna.
Eftir hádegi heimsóttum við álverksmiðju Alcoa á Reyðarfirði, Reyðarál.
Í álverinu vinna um 500 manns, en nokkur hundruð í viðbót í afleiddum störfum.
Kl.18:10 var flug til Reykajvíkur.