Föstudagur 9. mars
Kl.11 var stjórnarfundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.17-19 var svokallaður formannafundur framsóknarfélaganna í Suðvesturkjördæmi haldinn.
Fimmtudagur 8. mars
Kl.9:15 hófst fundur allsherjar- og menntamálanefndar.
Kl.12 var opinn fundur hjá Varðbergi um skipulagða glæpastarfsemi í Þjóðminjasafninu.
Hér er frétt á mbl.is af fundinum.
Náði að láta smyrja bílinn í dag.
Kl.19:30 var kvöldverðarhóf í norska sendiráðinu.
Miðvikudagur 7. mars
Fyrri hluta dags lá leiðin á flokksskrifstofuna.
Var í símaviðtali við Dv um leikhúsáhugann.
Útkoman var þessi skrýtna fyrirsögn og frétt . Ja hérna.
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.15-17 var fundur allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.
Þriðjudagur 6. mars
Kl.9-12 var fundur í allsherjar- og menntamálanefnd.
Kl.15-17 var stórfín ráðstefna um líffæragjafir á Grand hótelinu þar sem m. a. var rædd þingsályktunartillagan sem ég hef lagt fram á Alþingi ásamt meðflutningsmönnum um svokallað "ætlað samþykki" til líffæragjafa.
Hér er linkur á tillöguna.
Kl.19 komu Húni, Elín Björk og Hákon í mat.
Mánudagur 5. mars
Kl.15-17 var fundur í allsherjar- og menntamálanefnd.
Kl.17 var sjósund.
Sunnudagur 4. mars
Um kvöldið komu Hákon, Húni og Elín Björk í mat.
Laugardagur 3. mars
Kl.10:30 var opinn fundur Framsóknarflokksins á Akureyri.
Rætt var um nýsköpunarmál.
Á fundinum var Whalebuddy kynnt, en það er app um hvali og verður komið á framfæri í tengslum við hvalaskoðun.
Um kvöldið var skemmtilegt kvæðamannamót í Rauðku á Siglufirði.
Þar tróðu upp Kvæðamannafélagið Ríma(Fjallabyggð), Gefjun(Akureyri), Iðunn(Reykjavík), Árgali(Selfossi) og Félag Ljóðaunnenda(Egilsstöðum).