Föstudagur 29. júní
Kl.12 var stjórnarskiptafundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem ég tók við hlutverki forseta klúbbsins af Hirti Grétarssyni.
Fimmtudagur 28. júní
Kl.8:30 fórum við Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður, út á flugvöll til að hefja ferðalagið heim.
Þar með lauk ferð okkar á fund velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Miðvikudagur 27. júní
Um morguninn flugum við til Genfar.
KI.13-16 fundaði velferðarnefnd Norðurlandaráðs með sérfræðingum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar um tóbaks- og áfengisstefnu stofnunarinnar.
Um kvöldið fórum við í gamla bæinn og fengum okkur kvöldmat.
Þriðjudagur 26. júní
Kl.9-16 fundaði velferðarnefnd Norðurlandaráðs í Evrópuþinginu með stjórnmála- og embættismönnum um tóbaks- og áfengisstefnu ESB.
Kl.19:30 var nefndinni boðið í kvöldverð í sænska sendiráðinu.
Mánudagur 25. júní
Um miðjan daginn stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Aðalefni vinnu okkar núna er að undirbúa tillögur til Norðurlandaráðsþingsins í haust um tóbaks- og áfengisstefnu Norðurlandanna.
Kl.19 bauð Poul Skytte Christoffersen, sendiherra Dana, nefndinni í kvöldmat.
Sunnudagur 24. júní
Í dag lá leiðin til Brussel og Genfar en þar munum við Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður, sækja fund velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Laugardagur 23. júní
Í dag fórum við Ingunn systir ásamt mömmu í ferðalag um Suðurlandið í tilefni afmælis mömmu.
Skoðuðum við m. a. blómadaga í Hveragerði og keyptum lífrænt ræktað grænmeti í gróðrastöðinni Engi, rétt við Skálholt.