Föstudagur 2. mars
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Fimmtudagur 1. mars
Kl.9 var fundur í allsherjar- og menntamálanefnd þar sem Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra og fylgdarlið gerðu grein fyrir þeirri skipulögðu glæpastarfsemi sem nú á sér stað í landinu.
Kl.10:30 hófst þingfundur þar sem við m. a. greiddum atkvæði um hvort fella ætti niður Landsdómsákæruna.
Var málinu vísað frá með 33 atkvæðum gegn 24.
Í dag fór fram umræða um vannæringu barna í þróunarríkjum og tókum við Eygló Harðardóttir þátt í henni fyrir hönd framsóknarmanna.
Kl.20 lá leiðin í Borgarleikhúsið að sjá stórleikritið-Fanný og Alexander-.
Leikritið var gott og skemmtilegt þótt ég verði að gera þá játningu að ég skemmti mér enn betur þarsíðustu helgi á gamanleiknum -Klerkar í klípu- sem áhugamannaleikarar í Ungmennafélagi Biskupstungna eru að sýna í félagsheimilinu Aratungu í Reykholti um þessar mundir.
Menningin í sveitum landsins er víða áhugaverð og framsækin og gefur stórborginni ekkert eftir.
Miðvikudagur 29. febrúar
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.20 var Góugleði framsóknarkvenna á flokksskrifstofunni á Hverfisgötunni.
Þar var m. a. tískusýning þar sem sýndir voru gamlir og góðir kjólar í eigu framsóknarkvenna.
Þriðjudagur 28. febrúar
Kl.9-11 var fundur allsherjar- og menntamálanefndar.
Kl.13:30 hófst þingfundur þar sem við m. a. greiddum endanlega atkvæði um breytingar á matvælalögum sem er forsenda þess að hægt er að taka upp norræna hollustumerkið Skráargatið sem ég hef lengi barist fyrir.
Kl.16:30 var ég í beinu útvarpsviðtali á Bylgjunni um Skráargatið.
Kl.18 las ég Passíusálma í Grafarvogskirkju.
Kl.19 hélt Framsóknarflokkurinn veislu fyrir þingfulltrúa á Búnaðarþingi á flokksskrifstofunni.
Mánudagur 27. febrúar
Kl.13 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst þingfundur.
Kl.17 skrapp ég í Nauthólsvík.
Um kvöldið kom Hákon í mat.
Sunnudagur 26. febrúar
Kl.13:30 var setning Búnaðarþings á Hótel Sögu.
Þar mættu nokkrir þingmenn s. s. við Gunnar Bragi Sveinsson, Vigdís Hauksdóttir og Ásmundur Einar Daðason fyrir hönd framsóknarmanna.
Seinni partinn nýttist tíminn m. a. í góða göngu.
Laugardagur 25. febrúar
Kl.10:00-16:30 var sveitastjórnarráðstefna Framsóknarflokksins haldinn á Grand hótelinu undir yfirskriftinni -Lagður vegur vísar leiðina-.
Um kvöldið fór ég í lambalæri til Húna og Elínar Bjarkar.