Föstudagur 23. desember
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem við fengum kjúklingasalat í stað skötunnar.
Mæting var með slappara móti að þessu sinni og giskuðum við á að sumir hefði ekki mætt af ótta við að það væri skata í matinn, aðrir sleppt fundi til að komast í skötu annarsstaðar og einhverjir kannski uppteknir við að redda málum korter í jólin.
Seinni partinn lá leiðin í jólasund.
Fimmtudagur 22. desember
Kl.22 lá leiðin í Hörpuna á jólatónleika Muginson.
Miðvikudagur 21. desember
Dagurinn fór í tiltektir og annað jólastúss.
Þriðjudagur 20. desember
Nýtti daginn í að kaupa jólagjafir og pakka þeim inn.
Um kvöldið komu Hákon, mamma og Árni bróðir í lambalærið.
Mánudagur 19. desember
Kl.13 aðstoðaði ég Samband ungra framsóknarmanna(SUF) í jólamatarúthlutun Mæðrastyrksnefndar á Fiskislóð.
Röðuðum við mat og drykk í fjóra plastpoka pr. fjölskyldu.
Seinni partinn fór ég með Hákon í tanntékk hjá Ingunni systur.
Kl.17 nýttist tíminn í sjósundi með Heiði og Ingrid.
Kl.18:30 var árlegt jólaboð Siggu frænku og Golla þar sem fjölskyldan hittist og borðið góðan mat saman.
Sunnudagur 18. desember
Dagurinn fór í tiltektir og annað stúss.
Seinni partinn fór ég í sund.
Laugardagur 17. desember
Kl.10 lá leiðin á dekkjaverkstæði því í nótt sprakk á framdekki rétt vestan við Hvalfjarðargöngin.
Kl.10:30 hófust atkvæðagreiðslur á Alþingi.
Kl.14 hófst hátíðardagskrá á flokksskrifstofunni í tilefni 95 ára afmælis Framsóknarflokksins sem var í gær.
Kl.16:00-17:30 voru síðustu atkvæðagreiðslurnar fyrir jólahlé á Alþingi.