Föstudagur 16. mars
Í dag var flug heim og lýkur þar með för sendinefndar Norðurlandaráðs til norðvesturhluta Rússlands.
Fimmtudagur 15. mars
Kl.9 funduðum við með olíu- og gasfyrirtæki staðarins.
Síðan skoðuðum við mikla skautahöll þar sem lögð er áhersla á að kenna börnum listdans og íshokkí ásamt fleiri íþróttum í hliðarsölum s. s. skák og borðtennis.
Þar næst lá leiðin í kjötvinnslu staðarins, en hún vinnur aðallega hreindýrakjöt.
Kl.15:10 var svo flug til St. Petersburg.
Um kvöldið tók Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður, að sér að ganga með okkur um slóðir rússneskra rithöfunda, en hann var hér við rússneskunám á sínum tíma.
Miðvikudagur 14. mars
Kl.9 skoðuðum við menningarmiðstöðina.
Kl.10 hófst fundur með hérðasstjóranum(Governor) og þingmönnum.
Seinni partinn fórum við út á túndruna og skoðuðum bæinn Televiska og rústirnar við Pustozersk, en þar var fyrsta stærri byggðin norðan heimskautsbaugs á sínum tíma.
Farartækin í ferðinni voru sérútbúinn björgunarsveitarjeppi, beltabíll og svifnökkvi.
Þarna eru engir vegir þ. a. við ókum á ísilögðum ám til að komast um.
Þriðjudagur 13. mars
Kl.8 fórum við út á flugvöll og flugum til Naryan-Mar, sem er höfuborgin í Nenetssjálfstjórnarsvæðinu.
Seinni partinn skoðuðum við safnið og bæinn.
Síðan hittum við þingmenn svæðisins í opinberu kvöldverðarhófi.
Mánudagur 12. mars
Kl.9:35 var flug til St. Petersburg.
Þar hittist sendinefnd Norðurlandaráðs á Norrænu upplýsingaskrifstofunni, sem Norræna ráðherraráðið rekur.
Mika Boedeker, framkvæmdastjóri skrifstofunnar, skýrði okkur frá starfseminni sem starfsmenn hennar halda utan um í norðvestur Rússlandi.
Fimmtán starfsmenn vinna á skirfstofunni, þar af tólf í St. Petersburg, og einn í Murmansk, Arkangelsk og Pedrogoskov.
Kynningarfundinum lauk kl.17.
Kl.19:30 var kvöldverður í boði framkvæmdastjórans.
Sunnudagur 11. mars
Kl.8 var flug til Köben.
Laugardagur 10.mars
Dagurinn fór að hluta til í lestur gagna vegna ferðar sendinefndar Norðurlandaráðs til Rússlands í næstu viku.
Við Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður, erum fulltrúar Íslands í sendinefndinni.
Fyrst heimsækjum við uppýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í St. Petersburg, en síðan mun leiðin liggja til Naryan-Mar.