Föstudagur 4. maí
Kl.9:30 fór ég í klippingu til Lilju.
Kl.12 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.15 lá leiðin á Alþingi til að taka þátt í umræðum um heiðurslaun listamanna o.fl.
Um kvöldið komu strákarnir í plokkfisk.
Fimmtudagur 3. maí
Kl.9 var fundur í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.13:30 var kynning í HR á niðurstöðum könnunar á líðan barna og ungmenna.
Miðvikudagur 2. maí
Fór um morguninn í kaffi á stofuna til pabba.
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi.
Kl.18:30 var samráðsfundur þingflokks framsóknarmanna og stjórnar Samtaka atvinnulífsins.
Kl.21:30 var komið að minni ræðu um breytingar á skipan stjórnarráðsins.
Þriðjudagur 1. maí
Dagurinn nýttist í lestur gagna og skokk.
Um kvöldið komu strákarnir og Elín Björkí lambalæri.
Mánudagur 30. apríl
Kl.15 hófst fundur á Alþingi.
Sunnudagur 29. apríl
Dagurinn nýttist í Boston.
Um kvöldið var flug heim.
Hér eru myndir 1 frá Boston.
Myndir 2 frá Boston.
Myndir 3 frá Boston.
Laugardagur 28. apríl
Dagurinn nýttist í Boston.
Um kvöldið hittum við mamma og Ingunn systir, Melvin frænda og Lily, vinkonu hans.
Hann er úr norsk-sænsku móðurfjölskyldunni minni.