Föstudagur 7. október
Kl.8:30-15:00 var seinni dagur ráðstefnunnar um menningu og heilsu.
Seinni partinn tók ég lestina frá Malmö til Kaupmannahafnar.
Kl.19:45 var flug heim.
Fimmtudagur 6. október
Kl.9:30 hófst norræn ráðstefna um menningu og heilsu í Malmö.
400 manns sóttu ráðstefnuna.
Fyrst talaði sænski menningar- og íþróttamálaráðherrann, Lena Adelsohn Liljeroth.
Síðan hélt ég erindi sem formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs, en nefndin hefur unnið að því að koma verkefni af stað um að nýta menningu í bæði meðhöndlun sjúkra og til forvarna.
Nú þegar er nokkur reynsla komin á hvernig dans, málverk, bókmenntir, leiklist, söngur og fleira getur haft mjög jákvæð áhrif á sjúka.
Á ráðstefnunni tókum við Lena Adelsohn Liljeroth, ráðherra og Cristina Husmark Perhsson, þingmaður í sænska þinginu og í Norðurlandaráði, á móti áskorun um að tryggt yrði að haldið yrði áfram með verkefnið á norrænum vettvangi.
Fyrri degi ráðstefnunnar lauk kl.17:00
Kl.18:30 ók rúta með ráðstefnugesti í skrifstofur region Skåne.
Þaðan fórum við í hátíðarkvöldverð og kom það í minn hlut að halda þakkarræðu til gestgjafanna.
Miðvikudagur 5. október
Kl.9-10 var fyrsti fundur nýrrar velferðarnefndar.
Ræddum við svör velferðarráðherra til ESA vegna Íbúðalánasjóðs.
Kl.13 var flug til Kaupmannahafnar en þaðan tók ég lestina til Malmö.
Í dag sá ég fréttir af málum sem ég er fyrsti flutningsmaður að s.s. þetta um að skipuleggja fyrirfram ræðutíma á Alþingi .
Hingað til hef ég flutt þetta ein í tvígang, en nú sjá fleiri ljósið og eru flutningsmenn málsins alls 15 úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum.
Einnig var frétt af máli mín um að ráðherrar sitji ekki samhliða ráðherradómi á þingi, en það mál er ég að flytja nú, sem fyrsti flutningsmaður, í sjöunda sinn.
Hér er frétt af dv.is um tóbaksmálið svokallaða.
Sá frétt á eyjunni.is af niðurstöðu skipan þingflokksins í nefndir Alþingis en neðst í fréttinni er yfirlýsing frá stjórn þingflokksins.
Þriðjudagur 4. október
Kl.10:30 hófst fjárlagaumræðan á Alþingi.
Um kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Seinni partinn kom Hákon í mat.
Um kvöldið nýttist tíminn m. a. í að trimma.
Í dag var dreift á Alþingi nokkrum málum sem ég er fyrsti flutningsmaður að.
Þau eru:
1. Aðgerðaráætlun um tóbaksvarnir.
2. Reglubundnar heimsóknir til eldri borgara í forvarnarskyni.
3. Norræna hollustumerkið Skráargatið.
4. Breytt stjórnarskrá(þingseta ráðherra).
5. Hitaeiningamerkingar á skyndibita.
6. Rýmri fánatími.
7. Forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu.
8. Þingsköp Alþingis(umræðutími mála).
Sá flennifrétt á dv.is af máli, um hitaeiningamerkingar á skyndibita(mál nr. 5 hér ofar), sem ég er fyrsti flutningsmaður að eins og sjá má neðarlega í fréttinni.
Verða að viðurkenna að það er oft skondið hvernig mál eru "matreidd" í fjölmiðlum.
Mánudagur 3. október
Dagurinn fór vinnutengd mál.
Kl.17 var sjósund.
Kl.18 skrapp ég í móttöku þýska sendiráðsins í Þjóðmenningarhúsinu.
Kl.20:00-22:15 var stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana á Alþingi.
Mótmæli voru nokkur en minni en í fyrra.
Sunnudagur 2. október
Kl.13 komu Húni, Elín Björk, Hákon, Ingunn og Simmi í mat.
Laugardagur 1. október
Kl.10:10 var mæting í Alþingi.
Fjöldi manns mætti á Austurvöll til að mótmæla við þingsetninguna.
Kl.10:30 var gengið yfir í Dómirkjuna til messu.
Síðan tilbaka og til þingsalar þar sem Alþingi var sett.
Loks var hlutast til um sæti.
Dró ég sæti 16 og situr því mér á vinstri hönd Ragnheiður Ríkharðsdóttir, en Ásmundur Einar Daðason á þá hægri.
Ekki fluttist ég langt því á síðasta þingi hlaut ég sæti 14.