Föstudagur 25. maí
Kl.9 hófst fundur í allsherjar- og menntamálanefnd.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.11:30 var fundur í stjórn Rótarýklúbbs Seltjarnarness.
Kl.12 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.18 komu strákarnir og mamma í mat.
Fimmtudagur 24. maí
Kl.9 hófst fundur í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis.
Kl.10 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.10:30 hófst þingfundur.
Kl.11-15 voru atkvæðagreiðslur þar sem fellt var að draga aðildarumsókn að ESB tilbaka og samþykkt að leggja nokkrar spurningar um stjórnarskrána í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Kl.20 var félagsfundur framsóknarmanna í Árborg þar sem farið var yfir af hverju slitnaði upp úr meirihlutaviðræðum milli framsóknar- og sjálfstæðismanna um daginn, en sjálfstæðismenn föluðuðst eftir þeim viðræðum.
Ástæðan var sú að forysta sjálfstæðismanna í Árborg hafði ekki bakland til að ljúka þeim viðræðum.
Miðvikudagur 23. maí
Kl.13:30 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur allsherjar- og menntamálanefndar.
Um kvöldið komu strákarnir og Elín Björk í mat.
Þriðjudagur 22. maí
Kl.9-12 var fundur í allsherjra- og menntamálanefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi.
Mánudagur 21. maí
Kl.13 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst þingfundur þar sem m. a. var tekin fyrir fyrirspurn til velferðarráðherra frá mér um tóbaksmál.
Sunnudagur 20. maí
Um kvöldið komu strákarnir, Elín Björk og mamma í mat.
Laugardagur 19. maí
Kl.13 var opnunarhátíð Herminjasafnsins á Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.