Föstudagur 11. maí
Dagurinn fór í lestur og annað sem hæfir kvefpest.
Um kvöldið komu Hákon og mamma í mat.
Fimmtudagur 10. maí
Dagurinn fór í að vinna í heimasíðunni, lestur og annað slíkt.
Miðvikudagur 9. maí
Dagurinn fór í útréttingar, lestur gagna og vinnu við þingmál.
Þriðjudagur 8. maí
Kl.9-12 var fundur í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis.
Um kvöldið kom Hákon í mat.
Mánudagur 7. maí
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur í allsherjar- og menntamálanefnd.
Kl.17 var sjósund, en hitastig sjávar var 8,3 gráður í dag.
Sunnudagur 6. maí
Um kvöldið komu strákarnir í mat.
Laugardagur 5. maí
Kl.9:30 hittust félagar úr Rótarýklúbbi Seltjarnarness í áhaldahúsi bæjarins til að ná í plastpoka og taka þátt í hreinsun bæjarins.
Í minn hlut kom að hreinsa hluta Vallarbrautar og leiksvæðið þar.
Kl.11:30 lá leiðin á morgunkaffifund framsóknarmanna í Kópvogi.
Kl.17 hittumst við Anna Hrönn og Hróðný hjá Heiði vinkonu.
Heiður hélt stórveislu og bauð okkur upp á humar, andalæri og súkkulaðiköku.