Föstudagur 23. september
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Þaðan fór ég á sjávarútvegssýninguna í Fífunni.
Kl.15 var vöfflukaffi hjá Kidda á flokksskrifstofunni á Hverfisgötunni.
Allir eru velkomnir í rjómavöfflurnar hans alla föstudaga kl.15.
Kl.17 opnaði Fiann Paul, ljósmyndari, ljósmyndasýningu sína á húsveggnum á Tryggvagötu 10.
Sýningin er liður í brjóstagjafavikunni sem nú var að hefjast.
Fimmtudagur 22.september
Kl.12:15 var rótarýfundur á Hótel Sögu.
Eftir hádegi nýttist tíminn í myndbandsupptökur fyrir vef Framsóknarflokksins og önnur störf á flokksskrifstofunni.
Miðvikudagur 21. september
Kl.8 stýrði ég fundi valnefndar Norðurlandaráðs.
Ekki var unnt að ganga frá endanlegri tillögu um skiptingu í nefndir m. a. vegna þess að dönsku þingkosningarnar eru nýafstaðnar og ekki búið að skipa nýja danska þingmenn í Norðurlandaráð.
Einnig er beðið eftir að finnska deildin komi með tillögu að nýjum forseta og varaforseta Norðurlandaráðs fyrir næsta ár.
Kl.9-11 stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.11-12 hitti Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs, nefndir Norðurlandaráðs og kynnti hvernig Norðmenn vinna úr hörmungaratburðunum sem urðu í Ósló Utöya þann 22. júlí s. l.
Í hádeginu skrapp ég að skoða skemmdirnar á stjórnarráðsbyggingunum sem voru sprengdar þann 22. júlí.
Kl.13:00-14:30 stýrði ég síðan seinni hluta fundar velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Var komin heim til Íslands seint um kvöldið.
Þriðjudagur 20. september
Kl.10-12 stýrði ég fundi stjórnar flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.13-16 stýrði ég fundi flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Á fundinum var ég kjörin formaður flokkahópsins, en alls eiga 21 miðjuflokkar aðild að flokkahópnum.
Í flokkahópi miðjumanna í Norðurlandaráði eru þingmenn Norðurlandanna og sjálfstjórnarsvæðanna sem tilheyra frjálslyndum miðjuflokku, grænum og kristilegum demókrataflokkum.
Álfheiður Ingadóttir var einnig í dag kjörin formaður flokkahóps vinstri sósíalista í Norðurlandaráði.
Mánudagur 19. september
Um miðjan daginn funduðum við Beate Christine Wang, ritari velferðarnefndar Norðurlandaráðs, til að undirbúa fund nefndarinnar.
Nefndin er að fjalla um hvernig hægt er að bæta aðstöðu í fátækrahverfum á Norðurlöndunum.
Hér er linkur um starf nefndarinnar vegna þessa fyrr á árinu.
Um kvöldið hitti ég ritara flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Sunnudagur 18. september
Dagurinn nýttist í Noregi.
Laugardagur 17. september
Dagurinn nýttist í Noregi.