Föstudagur 27. apríl
Dagurinn nýttist í Boston.
Fimmtudagur 26. apríl
Dagurinn nýttist í Boston.
Miðvikudagur 25. apríl
Seinni part dags var flug til Boston.
Þriðjudagur 24. apríl
Kl.9 var fundur allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.19:30 var aðalfundur Framsóknarfélags Grindavíkur.
Mánudagur 23. apríl
Kl.10-14 var þingflokksfundur framsóknarmanna haldinn í höfuðstöðvum flokksins á Hverfisgötunni.
Þar fórum við yfir málin sem við viljum leggja áherslu á á næstunni og hvernig við viljum koma þeim á framfæri.
Kl.14 fylgdumst við með sjónvarpinu sem sýndi uppkvaðningu Landsdóms, en hún fór fram í Þjóðmenningarhúsinu.
Kl.17 var sjósund, en í dag var hitastig sjávar 6,5 gráður.
Kl.20 var aðalfundur framsóknarfélagsins á Seltjarnarnesi haldinn á Rauða ljóninu á Eiðistorgi.
Kl.20:30 var opinn fundur okkar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, á sama stað.
Sunnudagur 22. apríl
Í hádeginu fórum við Hákon, Húni og Elín Björk saman út að borða á Vegamót.
Seinni partinn vann ég í blaðagrein sem send verður inn í næstu viku.
Laugardagur 21. apríl
Um miðjan daginn var flug heim.