Föstudagur 6. janúar
Keyrði Hákon í skólann um morguninn.
Fyrir hádegi fór ég í útvarpsviðtal á Bylgjunni, sem var spilað í hádegisfréttum, um að rétt væri að gera gamla Hegningarhúsið á Skólavörðustígnum að safni um dóms- og fangelsismál.
Skrapp stutt á fund í Rótarýklúbbi Seltjarnarness í hádeginu.
Kl.13 var útför Óskars Maríussonar gerð frá Seljakirkju.
Í dag var send út þessi fréttatilkynning vegna góðrar úthlutunar til íslenskra verkefna úr Norræna menningarsjóðnum.
Kl.18:30 var brenna og flugeldasýning á Ægisíðunni.
Um kvöldið var skemmtilegt matarboð hjá Húna og Elínu Björku þar sem við m. a. spiluðum Alias.
Fimmtudagur 5. janúar
Í dag fórum við mamma á útsölur að skoða litla ísskápa.
Fundum einn sem hentaði.
Miðvikudagur 4. janúar
Vann á skrifstofunni hluta dagsins.
Um kvöldið kom Hákon i mat.
Þriðjudagur 3. janúar
Dagurinn fór að mestu í vinnu á skrifstofunni.
Mánudagur 2. janúar
Kl.7:20 var fyrsta vinnuverkefnið á þessu ári, en þá var ég í beinu útvarpsviðtali á Bylgjunni að ræða um ráðherraskiptin og sjósund.
Kl.17 nýttist tíminn í sjósundi, en í dag var hitastig sjávar mínus 1 gráða.
Kl.19:30 komu Hákon og mamma í kjúklingapottrétt.
Sunnudagur 1. janúar
Kl.10:30 mætti ég í nýárssjósundið í Nauthólsvíkinni.
Hér er frétt af mbl.is um sundið.
Var ég fyrst útí enda óvenju snemma á ferðinni að þessu sinni.
Hitastig sjávar var mínus 1 gráða og allir skemmtu sér vel í sjónum.
Í heitapottinum tók Stöð 2 sjónvarpsviðtal við mig um áramótaskaupið og það atriði sem sneri að mér í því.
Kvöldið nýttist í að horfa á góðar bíómyndir í sjónvarpinu.
Laugardagur 31. desember
Dagurinn fór í að undirbúa gamlársdagskvöldið og fylgjast með áramótaannálum í sjónvarpinu.
Skaupið í sjónvarpinu var frekar vellukkað.