Föstudagur 16. september
Kl.7:50 var flug til Noregs.
Fimmtudagur 15. september
Kl.10 var fundur í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Kl.10:30 hófst þingfundur þar sem m. a. var komið inn á þá ræðu sem ég flutti í gær um stjórnarráðsmálið(frétt mbl.is af því).
Í gær og í dag hef ég fengið mikil viðbrögð, og flest jákvæð, við ræðunni m. a. í sms-um, tölvupóstum og á facebook.
Kl.12 tók ég stutta forsetavakt.
Kl.16:30-18:00 var forsetavakt.
Kl.19 hitti ég lækna sem sinna tóbaksvarnarmálum.
Kl.20-22 vorum við síðan á fundi með Lyfjafræðingafélagi Íslands þar sem við kynntum þingsályktunina sem ég flyt ásamt meðflutningsmönnum um aðgerðaráætlun í tóbaksvörnum.
Miðvikudagur 14. september
Kl.8:30-10:00 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.10:30 hófst þingfundur.
Kl.13-14 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst þingfundur.
Stuttu síðar flutti ég ræðu um stjórnarráðsmálið þar sem ég rakti mín viðhorf og stefnu flokksins í málinu.
Ræðan vakti talsverða athygli.
Umfjöllun um ræðuna á mbl.is.
Hér er umfjöllun um hana á eyjunni; frétt 1 og frétt 2.
Kl.18:00-19:15 var vakt mín á forsetastóli.
Kl.20-22 var opinn fundur með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, í félagsheimili framsóknarmanna í Reykjanesbæ.
Þriðjudagur 13. september
Kl.15:00-16:30 var fyrri vakt mín á forsetastóli.
Kl.21:30-23:00 var seinni vakt mín á forsetastóli.
Laugardagur til mánudags 10.-12. september
Við Hákon nýttum dagana í Bandaríkjunum.