Vikan 29. júlí til 5. ágúst.
Vikuna 29. júlí til 5. ágúst var ég í Almería á Spáni í fríi.
Þar var skemmtilegt strandlíf og sól alla daga.
Nokkuð var um Íslendinga á svæðinu sem léku sér m.a. í sundlaugarblaki.
Matur var góður, bæði fiskur og kjöt.
Veitingastaðir voru margir á svæðinu en oftast borðað á hótelinu.
Á leiðinni heim var talsverð seinkun á flugi, en heim komust allir að lokum eftir gott frí.
Fimmtudagur 28. júlí
Kl.12:30 fór ég í klippingu til Lilju í Greiðunni.
Síðan vann ég gögnum vegna vinnunnar.
Um kvöldið var veisla hjá Hrafni Gunnlaugssyni, kvikmyndagerðarmanni.
Miðvikudagur 27. júlí
Skrapp í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Vann svo á skrifstofunni fram eftir degi.
Kl.17 var minningarathöfn í Norræna húsinu þar sem fórnarlamba voðaverkanna í Ósló og í Útey í Noregi var minnst.
Þriðjudagur 26. júlí
Hluti dagsins fór í að vinna í tölvunni.
Um kvöldið klipptum við Hákon niður basilikum og gerðum heimagert pestó.
Mánudagur 25. júlí
Kl.14:30 fór ég í norska sendiráðið að skrifa í minningarbók til að votta samúð vegna fráfalls þeirra sem dóu í voðaverkunum í Noregi s. l. föstudag.
Hér er klipp af vefnum þar sem fram kemur hvenær er opið í norska sendiráðinu vegna þessa:
"Vegna þeirra voveiflegu atburða sem áttu sér stað í Oslo og á Utøya 22. júlí mun liggja frammi minningarbók fyrir alla þá sem votta vilja hluttekningu og samúð sína.
Minningarbókin mun liggja frammi í sendiráði Noregs á Fjólugötu 17 í Reykjavík mánudag 25. júlí frá kl. 14.00 - 16.00 og þriðjudag 26. og miðvikudag 27. júlí frá kl. 10.00 -12.00 og frá kl.
14.00 - 16.00. "
Kl. 17 vorum við Helgi Hjörvar, alþingismaður, hjá Lindu Blöndal í Rúv-útvarpi að ræða um þennan hræðilega atburð.
Við Helgi höfum bæði verið virk í norrænu samstarfi, þ .á. m. stjórnmálasamstarfi.
Um kvöldið skruppum við mamma að sjá fallegt sólarlag.
Sunnudagur 24. júlí
Vann í húsinu um miðjan daginn.
Síðan lá leiðin suður.
Laugardagur 23. júlí
Nýtti daginn í að trimma og vinna í húsinu.
Kíkti líka niður á bryggju þegar keppendur á sjóstangaveiðimótinu komu með aflann að landi og skrapp á bryggjuna við Síldarminjasafnið þar sem síldarsöltun var sýnd.
Fygldist nokkuð með norska ríkissjónvarpinu fjalla um voðaverkin hræðilegu sem framin voru í miðbæ Óslóar og Útey í gær.
Hef verið í sambandi við fjölskylduna í Noregi, vini og stjórnmálamenn.
Allir eru miður sín vegna atburðanna.