Föstudagur 29. apríl
Kl.9:15 hitti ég, á Alþingi, fulltrúa úr utanríkisráðuneyti Svíþjóðar sem eru hér á landi að undirbúa Svía fyrir formennsku í Norðurskautsráðinu.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness, þar sem teknir voru inn nýir félagar.
Fimmtudagur 28. apríl
Nýtti daginn m. a. í að vinna í gögnum fyrir stjórn Norræna menningarsjóðsins.
Um kvöldið var lokafrestur til að koma með athugasemdir við styrkumsóknir sjóðsins á netinu.
Miðvikudagur 27. apríl
Í dag fór Hákon í munnlegt dönskupróf.
Allur bekkurinn mætti í prófið kl.8, en var vísað frá þar sem próftíminn var kl.13.
Gafst því stuttur viðbótartími til lesturs.
Þriðjudagur 26. apríl
Dagurinn fór í útréttingar.
Um kvöldið fór ég í göngu með Hildi systur.
Mánudagur 25. apríl
Dagurinn nýttist að hluta í að vinna í pappírum.
Fór um miðjan daginn í göngu með Heiði á Ásfjall og í kringum Ástjörn.
Um kvöldið komu Húni, Elín Björk, Hákon og mamma í mat til mín.
Sunnudagur 24. apríl
Um miðjan daginn lá leiðin heim.
Bauð mömmu í páskamat um kvöldið.
Laugardagur 23. apríl
Dagurinn nýttist með hluta fjölskyldunnar í páskaferð á Snæfellsnesi.
Árni bróðir var með í för en hann eldaði eitt besta lambalæri sem ég hef smakkað nokkru sinni, kryddað með ansjósum, hvítlauk og rósmarín.