Föstudagur 28. janúar
Í dag lá leiðin norður í land.
Um kvöldið fór ég á tónleika með Hjálmum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Fimmtudagur 27. janúar
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Kl.11 flutti Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, munnlega skýrslu um hæstaréttardóminn sem ógildir kosningu til stjórnlagaþings.
Tók ég þátt í umræðunni.
Um kvöldið komu Hákon, Húni og Elín Björk í mat.
Miðvikudagur 26. janúar
Kl.9 hófst fundur í velferðarnefnd Norðurlandaráðs.
Velferðarnefndin samþykkti m.a. tillögu Íslandsdeildar um mænuskaða og verður hún því lögð fyrir Norðurlandaráðsþingið í haust.
Seinni partinn var flug heim.
Var lent skömmu fyrir miðnætti.
Þriðjudagur 25. janúar
Kl.9 er fundur í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Kl.10-12 var fundur í stjórn flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.13:30-17:30 var fundur flokkkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.18:30-19:20 stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Á fundinum fengum við kynningu á hvernig unnið er gegn því að íbúasamsetning í Helsinki verði einsleit.
Í Helskinki eru 50% íbúanna einbúar og um 60% íbúða eru litlar, þ.e. 60 m2 eða minni.
Í dag var dreift á Alþingi fyrirspurn minni um boðunarkerfi fyrir ferðamenn á hættuslóðum og önnur fyrirspurn um hvernig nöfn látinna manna eru felldar úr skrám.
Mánudagur 24. janúar
Kl.10:45 hófst fundur í þingflokki framsóknarmanna á Hverfisgötunni.
Um hádegisbil hitti ég Húna stuttlega, en hann á afmæli í dag.
Um miðjan daginn fór Íslandsdeild Norðurlandaráðs til Esbo, rétt utan við Helsinki.
Sunnudagur 23. janúar
Um miðjan daginn komu Ingunn og fjölskylda í heimsókn.
Um kvöldið bauð ég Hákoni og mömmu í mangó/karrý-kjúklingarétt.
Síðan litu Húni og Elín Björk við í stutta stund.
Laugardagur 22. janúar
Kl.13 hófst fróðleg ráðstefna á Ólafsfirði um áhrif Héðinsfjarðarganga á Fjallabyggð.
Seinni partinn ók ég suður.
Um kvöldið skrapp ég með Heiði og Konna í veislu til Magga og Rögnu.