Föstudagur 11. mars
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Þar sagði Garðar Ólafsson okkur frá ferð sinni til Tyrklands.
Seinni partinn kom Kari, æskuvinkona mömmu, í nokkurra daga heimsókn til okkar.
Fimmtudagur 10. mars
Kl.10-12 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.12 hitti ég konur úr Sterkara Ísland.
Vann síðan í ýmsum gögnum.
Um kvöldið komu Hákon og mamma í mat.
Miðvikudagur 9. mars
Kl.10-12 heimsótti hluti þingflokks framsóknarmanna Háskólann í Reykjavík.
Eftir að hafa fengið fyrirlestur um starfsemi skólans gengum við um og skoðuðum húsnæðið, en það er glænýtt og allt hið glæsilegasta.
Kl.17:10 var ég í beinu útvarpsviðtali á Bylgjunni vegna málsins sem ég flyt á þingi um rýmri fánatíma.
Kl.19 hélt ég fyrirlestur um transfitusýrur á fundi hjá Inner Wheel á Hótel Loftleiðum.
Síðan fór ég á Vínbarinn að hitta nokkra bekkjarfélaga mína úr 6-S í MR í tilefni þess að Kalli er á landinu.
Þriðjudagur 8. mars
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.14 hljóp ég í skarðið í efnahags- og skattanefnd á Alþingi.
Kl.15 fór ég í viðtal.
Kl.16:30-17:30 var ég í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.17:30-19:00 hljóp ég í skarðið í umhverfisnefnd Alþingis.
Mánudagur 7. mars
Dagurinn fór að hluta til í pappírsvinnu.
Kl.15:00-17:30 hljóp ég í skarðið í menntamálanefnd Alþingis.
Skrapp síðan í Nauthólsvíkina.
Um kvöldið borðaði ég súpu hjá Heiði.
Sunnudagur 6.mars
Í dag komu Húni, Elín Björk, Hákon og mamma til mín í lambahrygg og rjómabollur.
Dagurinn nýttist líka í að vinna í tölvunni s.s. í tölvupósti sem hefur hrannast upp.
Laugardagur 5. mars
Kl.13:15 hófst miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins í Rúgbrauðsgerðinni.
Mjög fín mæting var á fundinn.
Á fundinum var m.a. ákveðið að halda flokksþingið helgina 9.-10.apríl, sömu helgi og þjóðaratkvæðagreiðslan um icesave 3 fer fram.