Föstudagur 11. febrúar
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklubbi Seltjarnarness.
Kl.13:30 tókum við, fulltrúar þingflokka á Alþingi, á móti kærleikshjörtum barna úr Hlíðaskjóli í Skálanum.
Hér er umfjöllun um þennan atburð á kampur.is.
Um kvöldið hitti ég vinkonur mínar.
Fimmtudagur 10. febrúar
Skrapp með Hákon til læknis um morguninn.
Nýtti daginn m.a. í að vinna í kjördæmamálum.
Seinni partinn skrapp ég í sund og um kvöldið komu Húni og Hákon í mat.
Miðvikudagur 9. febrúar
Skrapp í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Vann talsvert í tölvunni og náði að klára vinnslu tveggja þingsályktana sem ég legg líklega fram í næstu viku.
Þriðjudagur 8. febrúar
Lagði snemma af stað að austan í bæinn til að vera á undan veðrinu sem var spáð.
Um kvöldið komu Húni og Hákon í mat.
Mánudagur 7. febrúar
Um miðjan daginn lá leiðin austur á land.
Kl.20 hófst opinn fundur framsóknarmanna í Hofgarði í Öræfasveit.
Í upphafi fundar fluttu alþingismennirnir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Eygló Harðardóttir og Siv Friðleifsdóttir framsögur.
Síðan var spurt og spjallað.
Fundurinn var hinn besti.
Að fundi loknum fór ég á Svínafell með Ólafi og Pálínu.
Sunnudagur 6. febrúar
Um miðjan daginn var ég í skemmtilegu pallborði á ráðstefnu um náttúrutengda ferðamennsku í Listasafni Reykjavíkur Í Hafnarhúsinu.
Rástefnan var haldin að frumkvæði Gunnþóru Ólafsdóttur og Markúsar Þórs Andréssonar í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur, ReykjavíkurAkademíunnar og Félags Landsfræðinga.
Laugardagur 5. febrúar
Um miðjan daginn var haldinn ráðstefna framsóknarmanna um Samvinnufélög og frjáls félagasamtök.
Ráðstefnan var á flokksskrifstofunni á Hverfisgötunni.