Föstudagur 1. október
Um morguninn fór ég í viðtal um útivistarmál.
Kl.12:15 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.13:30 gengu þingmenn til Dómkirkjunnar áður en Alþingi var sett.
Nokkur hópur fólks mótmælti á Austurvelli og var m.a. rúða brotin í Dómkirkjunni í miðri messu og kirkjan grýtt.
Einnig var eggjum og tómötum kastað í þinghúsið.
Kl.16 var hlutast til um sæti.
Dró ég sæti 14 og sit við hlið Valgerðar Bjarnardóttur.
Í öðrum þjóðþingum sitja þingmenn oftast í mörg ár í sömu sætum og raðast eftir kjördæmum eða flokkahópum.
Við höfum þá góðu venju að hlutast til um sæti árlega.
Seinni partinn fórum við Hildur Helga Gísladóttir, formaður Kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, samferða í Vík í Mýrdal.
Þar hefst sameiginlegur fundur þingflokks framsóknarmanna og Landsstjórnar á morgun.
Fimmtudagur 30. september
Var mestan hluta dagsins í störfum á skrifstofunni.
Kl.19:30 var athöfn í Skógræktarstöðinni Þöll í Hafnarfirði þar sem Hólmfríður Finnbogadóttir var heiðruð af Krabbameinsfélagi Hafnarfjarðar í tilefni Bleikra daga félagsins.
Síðan stóð Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fyrir kvöldgöngu um skógrækt sína.
Að lokinni göngu var boðið upp á kakó, kaffi og kökur.
Miðvikudagur 29. september
Dagurinn nýttist í vinnu á skrifstofunni.
Gekk frá þeim málum sem ég mun endurflytja í upphafi næsta þings og sendi þau í skjalavinnsluna.
Seinni partinn tókum við Hákon æfingarúnt, en hann er að æfa sig fyrir bílprófið.
Kl.18:30-20:40 var fundur í stjórn Sundsambands Íslands(SSÍ) í Laugardalnum.
Þriðjudagur 28. september
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.12 var opinn fundur á Hótel Borg þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fór yfir stöðu mála.
Kl.14:30 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi þar sem við ræddum um komandi atkvæðagreiðslu.
Kl.16 var atkvæðagreiðsla um landsdóm.
Hér sést hvernig þingmenn greiddu atkvæði.
Mánudagur 27. september
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.13:30-15:00 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.17:30 fórum við mamma í móttöku á Bessastaði í tilefni þess að nýr norskur sendiherra, Dag Wernö Holter, afhenti forseta Íslands trúnaðarbréf sitt.
Um kvöldið eldaði ég fisk fyrir strákana.
Sunnudagur 26. september
Fyrri partur dags nýttist m.a. í sundi með Heiði og Önnu Hrönn.
Seinni hluti dagsins fór aðallega í að taka upp kartöflur.
Laugardagur 25. september
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna í félagsheimilinu á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Nýtti síðan hluta dagsins í heimsóknir.