Föstudagur 14. janúar
Kl.10:30 var móttaka í Actavis í Hafnarfirði í tilefni þess að verksmiðjan hefur verið stækkuð um helming.
Hér er frétt af heimasíðu Actavis um stækkunina.
Kl.12:15 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Eftir hádegi var fróðleg ráðstefna um sjávarútvegsmál á flokksskrifstofunni.
Um kvöldið skrapp ég í heimsókn til Ingunnar systur til að fara í heita pottinn.
Í dag á dagbókin á heimasíðu minni 9 ára afmæli, þ.e fyrir 9 árum hófust daglegar dagbókarfærslur.
Heimasíðan sjálf er eldri þar sem hún komst í gagnið í mars 1999 fyrir alþingiskosningarnar það ár.
Dagbókin er myndskreytt og eru yfir 18.300 myndir tengdar við atburðina sem ég hef fjallað um.
Í tilefni afmælisins þakka ég öllum þeim gestum sem heimsækja heimasíðuna.
Fimmtudagur 13. janúar
Í hádeginu var fundur vegna norrænnar samvinnu.
Var síðan á skrifstofunni á Alþingi.
Um kvöldið komu Húni og Hákon í mat.
Miðvikudagur 12. janúar
Í hádeginu var athyglisverður fundur í Háskóla Íslands þar sem fjallað var um hvort gera ætti landið að einu kjördæmi.
Er ég meðflutningsmaður að slíku máli á Alþingi.
Seinni partinn lá leiðin á flokksskrifstofuna.
Um kvöldið komu Húni og Hákon í mat.
Þriðjudagur 11. janúar
Um morguninn lá leiðin á morgunkaffifund Jöklarannsóknarfélags Íslands(JÖRFÍ) í Húsasmiðjunni.
Kl.11 var tími í klippingu hjá Lilju í Greiðunni.
Eftir hádegi var ég á skrifstofunni á Alþingi.
Um kvöldið var fyrirlestur um mataræði hjá-Maður lifandi- í Borgartúninu.
Seint um kvöldið fylgdist ég með talsverðum sinubruna við Norræna húsið, en slökkviliðinu tókst að hemja hann með vöskum framgangi.
Mánudagur 10. janúar
Um miðjan daginn var ég á skrifstofunni á Alþingi og skrapp síðan í heimahús.
Kl.17 var sjósundið, en í dag var hitastig sjávar með lægsta móti eða mínus 1,8 gráður.
Lofthiti var mínus 6 gráður.
Við þessi skilyrði eru ísnálar í sjónum.
Sjósundið var samt hressandi og fórum við þrisvar sinnum útí.
Um kvöldið var fundur í Slysavarnardeild kvenna á Seltjarnarnesi þar sem fluttur var fyrirlestur um áfallahjálp.
Sunnudagur 9. janúar
Um miðjan daginn nýttist tíminn í góða göngu í skógrækt Hafnarfjarðar.
Um kvöldið komu Hákon, Húni og Elín Björk í mat.
Rakst á sérstæða yfirlýsingu þremenninganna í Vg, þeirra Lilju Mósesdóttur, Ásmundar Einars Daðasonar og Atla Gíslasonar, um fjárlagavinnuna á netinu.
Laugardagur 8. janúar
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna í félagsaðstöðunni á Digranesveginum í Kópavogi.
Um kvöldið lá leiðin í Borgarleikhúsið þar sem sýnd var síðasta sýning á -Jesús litla-.
Leikararnir þrír, Halldóra Geirharðsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson, fóru á kostum í sýningunni.