Föstudagur 17. september
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um Landsdóm.
Kl.12:15 var rótarýfundur.
Eftir hádegi var þingfundi frestað, nokkuð óvænt, til mánudags.
Fimmtudagur 16. september
Hluti dagsins fór í að klára að lesa kynjagreininguna á skýrslu rannsóknarnefndarinnar um bankahrunið.
Seinni partinn fórum við Ingunn í góða göngu áður en við tókum upp kartöflur.
Miðvikudagur 15. september
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.14 hófst mín vakt á forsetastóli.
Um miðjan daginn hélt ég ræðu um þingsályktunina sem þingmannanefndin, sem fór yfir skýrslu rannsóknarnefndarinnar um bankahrunið, hefur lagt fram.
Seinni partinn fórum við Hákon í bæinn að snarla.
Þriðjudagur 14. september
Kl.9 var kaffi í Húsasmiðjunni hjá Jöklarannsóknarfélagi Íslands(JÖRFÍ).
Kl.10:30 átti að hefjast fundur á Alþingi, en hann dróst aðeins vegna ríkisstjórnarfundar.
Kl.14:30 var fundur stjórnarmeðlima í -Þú getur- ásamt tveimur gestum á hótel Borg.
Kl.17:20-19:00 var mín vakt á forsetastóli.
Mánudagur 13. september
Kl.10 var viðtal á Alþingi.
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um niðurstöður þingmannanefndarinnar sem fór yfir skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið.
Kl.13 hitti ég Ingu Hansen, fréttamann grænlenska sjónvarpsins og ræddi við hana um samskipti Íslands og Grænlands.
Kl.15-16 var mín vakt á forsetastóli.
Kl.20:07 var ég í Kastljósinu á rúv-sjónvarpi ásamt þingmönnunum Margréti Tryggvadóttur og Guðlaugi Þór Þórðarsyni til að ræða um þau mál sem eru til umfjöllunar á Alþingi þessa dagana.
Hér er upptaka af þættinum.
Sunnudagur 12. september
Kl.10:50 var ég í beinni útsendingu í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni ásamt Árna Páli Árnasyni og Þorsteini Pálssyni(Vilhjálmur Egilsson var á símalínunni í hluta þáttarins).
Ræddum við um atvinnumál, niðurstöðu þingmannanefndarinnar um hvort kalla bæri saman Landsdóm og fleira.
Í hádeginu skrapp ég til Erlu og Húnboga.
Settist síðan niður við áframhaldandi lestur skýrslunnar sem þingmannanefndin skilaði af sér í gær.
Laugardagur 11. september
Kl.15 var þingflokksfundur á Alþingi þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson og Eygló Harðardóttir, fulltrúar þingflokks framsóknarmanna í þingmannanefndinn sem fer yfir skýrslu Rannsóknarnefndarinnar um bankahrunið, gerðu okkur grein fyrir niðurstöðum þingmannanefndarinnar.
Nefndin er öll sammála um að breyta þurfið fjölda laga í kjölfar bankahrunsins og láta fara fram rannsóknir á starfsháttum Sparisjóðanna og Lífeyrissjóðanna.
Einnig að gerð verði stjórnsýsluúttekt á starfsháttum Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.
Starfsemi endurskoðenda verði einnig rannsökuð.
Sigurður Ingi og Eygló skýrðu fyrir okkur að þau, ásamt fulltrúum Vg og fulltrúa Hreyfingarinnar, telja að ákæra beri 4 fyrrum ráðherra.
Fulltrúar Samfylkingarinnar í nefndinni telja að ákæra beri 3 fyrrum ráðherra en fulltrúar Sjálfstæðiflokksins engan.
Kl.17 leit ég inn á samkomu Landssambands framsóknakvenna á skrifstofunni á Hverfisgötunni.
Kl.19 hófst bekkjarpartý 6-S, bekkjar míns í MR.
Hin seinni ár höfum við hist reglulega árlega og nú í ár erum við að hittast í annað sinn.
Tilefnið var m.a. að bekkjarsystir okkar, Helena Önnudóttir, er hér á landi um þessar mundir, en hún býr í Ástralíu.