Föstudagur 3. desember
Ók Hákoni í próf fyrri partinn.
Kl.14 hófst fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.18 skrapp ég í saumaklúbb.
Fimmtudagur 2. desember
Kl.13 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Um kvöldið var jólafundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi.
Miðvikudagur 1. desember
Í hádeginu komu Húni og Hákon í mat.
Kl.18 hófst boð forseta Íslands í tilefni af 1. desember á Bessastöðum.
Þriðjudagur 30. nóvember
Kl.9-14 var seinni hluti fundar stjórnar Norræna menningarsjóðsins.
Næsti fundur er netfundur þar sem útdeilt er lægri styrkjum til norrænna menningarverkefna.
Kl.20:10 var flug heim.
Mánudagur 29. nóvember
Kl.11-16 var fyrri hluti fundar stjórnar Norræna menningarsjóðsins.
Um kvöldið skoðuðum við áætlanir borgarstjórnar Kaupmannahafnar um að útbúa aðstöðu fyrir lítil listagallerí í gamla slátrarahverfinu(Ködbyen).
Sunnudagur 28. nóvember
Kl.14:15 var flug til Kaupmannahafnar, en þar er fundur Norræna menningarsjóðsins.
Laugardagur 27. nóvember
Um morguninn sprakk framdekkið á bílnum við Melabúðina í fimbulfrosti.
Á innan við hálftíma hafði Hjólbarðaverkstæðið á Ægissíðunni(við hlið bensínstöðvarinnar) hjálpað mér að setja varadekkið á, gert við dekkið og skellt því á.
Þjónustan var ótrúlega hröð og kostaði lítið.
Mæli hiklaust með þessu frábæra dekkjaverkstæði.
Komst af þessum sökum í tæka tíð á morgunkaffifund framsóknarmanna á Digranesvegi í Kópavogi.
Um miðjan daginn fórum við Hákon í heimsókn í Hafnarfjörðinn til Simma að skoða hvolpinn Nelson.