Föstudagur 3. júní
Nýtti daginn á Siglufirði.
Fimmtudagur 2. júní
Í dag lá leiðin norður á Sigló.
Miðvikudagur 1. júní
Kl.10:30 hófst þingfundur.
Kl.11:30-13:30 var mín vakt á forsetastóli Alþingis.
Kl.14:15 var þingflokksfundur þar sem Ásmundur Einar Daðason gekk til liðs við okkur.
Kl.18:30 var smink.
Kl.19:25 vorum við Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri verslunar og þjónustu, í Kastljósinu að ræða um þingsályktunartillögu mína og fleiri um tóbaksvarnaráætlun.
Kl.20 var opinn fundur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, í Muffins Bakery í Kópavogi.
Þriðjudagur 31. maí
Kl.7:10 var ég í símaviðtali á Bylgjunni vegna tóbaksvarnartillögunnar sem var dreift á Alþingi í gær.
Kl.7:40 vorum við Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður, á Rás 2 að ræða um þá umræðu sem hefur skapast vegna umfjöllunar Kastljóssins um s.k. læknadóp.
Kl.10:30 hófst þingfundur.
Kl.12:00-13:30 sótti ég, fyrir hönd þingflokks framsóknarmanna, opinn fund SÍBS í Iðnó um velferðarmál.
Fór síðan á þingflokksfund.
Kl.14:00-15:30 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Kl.20-22 var ég á aðalfundi fulltrúarráðs framsóknarfélaganna í Hafnarfirði.
Í dag og í gær hef ég fengið marga tölvupósta vegna tóbaksvarnarmálsins þar sem fram koma allskyns rök og góðar ábendingar um hvernig ná megi árangri í tóbaksvörnum.
Líklega næ ég ekki að svara öllum póstunum.
Mánudagur 30. maí
Kl.10 hófst fundur forsætisnefndar Alþingis.
Kl.10:30 hófst þingfundur.
Kl.12:30 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Í dag var þingsályktunartillögu minni um tóbaksvarnir lögð fram á Alþingi.
Hljómar tillögugreinin svo "Alþingi ályktar að fela velferðarráðherra að vinna 10 ára aðgerðaráætlun þar sem einn liðurinn verði að sala á tóbaki verði takmörkuð við apótek."
Meðflutningsmenn eru úr öllum stjórnmálaflokkum á Alþingi.
Seinni partinn fór ég í nokkur viðtöl vegna þingsályktunarinnar um tóbaksvarnir.
Viðtal um málið á Bylgjunni.
Frétt mbl.is um málið.
Kl.15:00-16:30 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Kl.20:30-22:00 var seinni vakt mín á forsetastóli.
Sunnudagur 29. maí
Seinnipartinn fór hluti fjölskyldunnar til Árna í grillveislu.
Laugardagur 28. maí
Um kvöldið nýttist tíminn hjá Ingunni við að steikja bollur fyrir útskriftarveislu Húnboga, en hann útskrifast úr læknadeild HÍ þann 11. júní.