Föstudagur 22. október
Um morguninn hófst fundur Baltneska ráðsins.
Stóð fundurinn til kl.18:30.
Á fundinum tók ég til máls um samstarfið í heilbrigðismálum, en Helgi Hjörvar um samstarf Norðurlandaráðs og Baltneska ráðsins.
Um kvöldið var athöfn þar sem veitt voru bókmenntaverðlaun, listaverðlaun og vísindaverðlaun Baltneska ráðisins .
Fimmtudagur 21. október
Í dag lá leiðin til Riga í Lettlandi til að vera fulltrúi velferðarnefndar Norðurlandaráðs á fundi Baltneska ráðsins.
Umm kvöldið var athöfn þar sem Baltneska ráðið veitti heiðursviðurkenningar.
Miðvikudagur 20. október
Kl.8:30 var fundur í heilbrigðisnefnd.
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.14 hófst þingfundur.
Kl.15:00-16:30 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Þriðjudagur 19. október
Kl.11:45 var fundur í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Kl.13-14 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.14 hófst þingfundur á Alþingi.
Kl.17:00-17:30 var mín vakt á forsetastóli á Alþingi.
Kl.18:00-20:30 var samráðsfundur um St. Jósefsspítala og Sólvangs í Hafnarfirði þar sem stjórnendur stofnunarinnar, þingmenn Suðvesturkjördæmis, heilbrigðisráðherra, embættismenn og stuðningsfélag stofnunarinnar fóru yfir hagræðingarkröfur í heilbrigðisþjónustunni.
Kl.20:30 fór ég á fund í Kvenfélaginu Seltjörn á Seltjarnarnesi.
Mánudagur 18. október
Kl.12 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst þingfundur á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Kl.15:30-16:00 tók ég vakt á forsetastóli Alþingis.
Seinni partinn var tími til að fara í sjósund, en í dag var hitastig sjávar 8,8 gráður.
Sunnudagur 17. október
Fór um miðjan daginn í sund með Heiði.
Seinni partinn nýttist tíminn m.a. í æfingaakstur með Hákoni og í að hjálpa Húna og Elínu Björk að bera inn í íbúðina þeirra á stúdentagörðunum.
Laugardagur 16. október
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Var síðan í tiltektum því Hákon var með veislu fyrir MR-bekkinn sinn í gær.
Um kvöldið fór ég í matarboð.