Föstudagur 24. júní
Fór í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.13:30 var fundur í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Fimmtudagur 23. júní
Í dag átti mamma afmæli.
Um kvöldið fór ég í góða göngu með systur minni.
Miðvikudagur 22. júní
Kl.12 var hádegisfundur.
Kl.14 tók ég viðtal á Alþingi.
Kl.17 var fundur í viðtakandi stjórn Rótarýklúbbs Seltjarnarness.
Um kvöldið nýttist tíminn í trimm og sjósund.
Þriðjudagur 21. júní
Kl.6 mættum við nokkur við Seltjarnarneskirkju til að hjóla af stað með Þóri Kr. Þórissyni, fyrrum bæjarstjóra á Siglufirði, en hann var að leggja upp í hjólaferð til Siglufjarðar til styrktar Iðju.
Um kvöldið trimmað ég.
Mánudagur 20. júní
Fyrri part dags gengum við undir leiðsögn Guðjóns Friðrikssonar, sagnfræðings, um slóðir Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn.
Um miðjan daginn var boðið upp á smurt brauð að dönskum sið í Jónshúsi.
Um kvöldið var flug heim.
Sunnudagur 19. júní
Um morguninn var flug til Köben en þar er hátíðardagskrá í Jónshúsi í tilefni 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar.
Kl.16 hófst hátíðardagskráin í Jónshúsi.
Kl.19:30 var kvöldverður í sendiherrabústaðnum.
Laugardagur 18. júní
Dagurinn fór í tiltektir og annað stúss.
Seinni partinn nýttist tíminn í að trimma út í Nauthólsvík, fara í sjósund og trimma tilbaka.