Föstudagur 26. nóvember
Kl.12:15-13:30 var rótarýfundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.19:30 hófst árshátíð leiðsögumannahópsins míns sem útskrifaðist saman úr Endurmenntun Háskóla Íslands.
Boðið var upp á danskan julefrokost og komu allir með einn rétt.
Stríðsárin voru þema kvöldsins.
Seinna um kvöldið náði ég líka að fara á skemmtikvöld Landsstjórnar á flokksskrifstofu framsóknarmanna á Hverfisgötunni.
Fimmtudagur 25. nóvember
Kl.11:30-13:00 var mín vakt á forsetastóli.
Nokkuð hörð umræða var að aflokinni utandagskrárumræðu um dragnótaveiðar sem varð til þess að ég vék ráðherra úr ræðustóli.
Um kvöldið kom Hákon í mat.
Miðvikudagur 24. nóvember
Kl.8:30 hófst fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Kl.14 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.
Kl.15:00-16:30 var mín vakt á forsetastóli.
Þriðjudagur 23. nóvember
Kl.9:30 fór ég í klippingu til Lilju í Greiðunni.
Kl.11 hitti ég Dag Wernö Holter, sendiherra Noregs.
Kl.13-15 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst þingfundur.
Kl.15:30-16:30 var fyrri vakt mín á forsetastóli á Alþingi.
Kl.18:00-19:30 var seinni vakt mín á forsetastóli.
Mánudagur 22. nóvember
Um miðjan daginn ók ég suður.
Mikil hálka var víða á veginum enda talsvert frost.
Um kvöldið komu Húni og Hákon í mat.
Sunnudagur 21. nóvember
Kl.10:00-13:00 var miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins á Hótel Húsavík.
Síðan lá leiðin um Akureyri, Dalvík, Ólafsfjörð og til Siglufjarðar.
Um kvöldið fór ég í kaffi til Sigga Steingríms og Sollu.
Laugardagur 20. nóvember
Kl.9-18 var samvinnufundur og miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins á Hótel Húsavík.
Á samvinnufundinum var skemmtilegt nefndarstarf þar sem við fórum yfir mögulegar breytingar á skipulagi flokksins.
Kl.20 hófst kvöldverðarboð framsóknarmanna á sama stað.
Guðmundur Bjarnason, fyrrum þingmaður og ráðherra, var heiðursgestur kvöldsins.