Föstudagur 1. apríl
Kl.8:30 fór ég í klippingu til Lilju í Greiðunni.
Fór síðan til Heiðar að vinna í myndasýningu fyrir kvöldið.
Kl.17 fór 6-S, gamli bekkurinn minn úr MR, í Hólavallakirkjugarð.
Þar nutum við skemmtilegrar leiðsagnar hjónanna, Sólveigar Ólafsdóttur og Heimis Janussonar, en þau þekkja garðinn út og inn.
Síðan lá leiðin í fordrykk og svo í kvöldmat á veitingastaðinn Við Höfnina.
Þar var m.a. myndasýning þar sem sýndar voru gamlar myndir frá ýmsum skemmtiferðum 6-S.
Fimmtudagur 31. mars
Kl.8 stýrði ég fundi kjörnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.8:30-11:30 stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Sænski ráðherrann sem sér um innflytjendamál, Erik Ullenhag(integrasjonsminister), sat fyrir svörum á fundinum.
Kl.12:30 heimsóttum við Rinkeby, en þar býr hátt hlutfall innflytjenda.
Þar ræddum við um ýmis verkefni sem snúa að innflytjendamálum.
Kl.17:25 var flug til Köben og þaðan heim.
Var lent í Keflavík um miðnætti.
Sá á netinu að systursonur minn, Þórir Guðmundur sonur Hildar og Þorbjarnar, skoraði ótrúlega flautukörfu í körfuboltakeppni eins og sést í þessari frétt af mbl.is. Magnað!
Miðvikudagur 30. mars
Kl.8:30 var fundur Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Kl.10-12 var fundur stjórnar miðjumanna í Norðurlandaráði.
Í dag kom frétt á ruv.is um svarið sem ég fékk við fyrirspurn minni um gúmmíkurl á gervigrasvöllum og önnur á mbl.is.
Ég tel að svarið sé mjög gott og vænti þess að gúmmíkurl sem inniheldur krabbameinsvaldandi efni og önnur eiturefni fasist út í náinni framtíð.
Í staðinn verði notað hættulaust kurl.
Kl.13:30 var kynningarfundur um atvinnuleysi ungs fólks á Norðurlöndum.
Kl.14:45-17:00 var fundur miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.17 hófst sameiginlegur fundur velferðarnefndar, menntamálanefndar og atvinnumálanefndar Norðurlandaráðs þar sem fjallað var um atvinnuleysi ungs fólks á Norðurlöndum.
Sat ég í pallborði á fundinum.
Um kvöldið skrapp ég í íslenska sendiráðið og í Nobelshúsið í Stokkhólmi.
Þriðjudagur 29. mars
Kl.7:50 var flug til Stokkhólms, en þar fara fram fundir nefnda Norðurlandaráðs næstu tvo daga.
Í dag var dreift svari á Alþingi við fyrirspurn minni um gúmmíkurli í gervigrasvöllum.
Mánudagur 28. mars
Kl.11 var fundur í forsætisnefnd Alþingis.
Kl.13 var fundur þingflokks framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst þingfundur.
Kl.17 gafst tími í sjósund en í dag var hitastig sjávar 3,7 gráður.
Sunnudagur 27. mars
Las m.a. umsóknir fyrir úthlutanir úr Norræna menningarsjóðnum og vann í tölvunni.
Kl.18 komu Hákon, Húni og Elín Björk í kjötsúpu og ís.
Laugardagur 26. mars
Kl.14 sýndi ég gestum Alþingi.
Vann síðan í gögnum s.s. fyrir velferðarnefnd Norðurlandaráðs.