|
Í Læknablaðinu í febrúar 2010(tbl.2 2010) er grein eftir Guðmund Þorgeirsson, hjartalækni á Landspítalanum, sem ber titilinn "Forvarnir gegn hjarta- og æðasjúkdómum á tímum gagnreyndrar læknisfræði". Þar kemur fram glæsilegur árangur af lífsstílsbreytingum Íslendinga. Þar segir "Á tímabilinu 1981-2006 lækkaði dánartíðni úr kransæðasjúkdómi um 80% meðal íslenskra karla og kvenna á aldursbilinu 25-74 ára. Áætlað var að fjórðungur lækkunarinnar væri vegna bættrar lyfjameðferðar og aðgerða við sjúkdómnum en þrír fjórðu vegna lífsstílsbreytinga. Þannig stöfuðu um 36% af lækkuðu kólesteróli í blóði landsmanna(0,8 mmól/L lækkun að meðaltali undirstrikar miklar breytingar í mataræði), 25% vegna lækkaðs blóðþrýstings og 20% vegna minni reykinga. Samtímis varð einnig neikvæð þróun á vissum sviðum. Aukin tíðni offitu og sykursýki leiddi samtals til 9% hækkunar í dánartíðni sem hamlaði gegn en glæsilegri árangri." |