Siv Friðleifsdóttir

Yfirlýsing um framboð

02/02/2009

Undirrituðu gefur kost á sér til endurkjörs sem oddviti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Mörg stór og vandasöm verkefni bíða þeirra stjórnmálamanna sem taka sæti á Alþingi eftir næstu alþingiskosningar. Meðal annars þarf að taka ákvarðanir til að verja heimili og fyrirtæki með réttlæti og jafnræði að leiðarljósi. Einnig þarf að koma á stjórnlagaþingi til að breyta stjórnskipan landsins og ná þannig fram virku lýðræði og jafnrétti. Ég býð fram reynslu mína, þekkingu og krafta til að takast á við þau verkefni sem vinna þarf samfélaginu til heilla á næstu árum.

Siv Friðleifsdóttir

þingflokksformaður framsóknarmanna