Þú getur
08/11/2008Þú getur verið með!
Stofnaður hefur verið nýr forvarna- og fræðslusjóður til styrktar þeim sem eiga við geðræna vanlíðan eða veikindi að stríða. Markmið sjóðsins eru að styrkja til náms, berjast gegn fordómum og efla nýsköpun í geðheilbrigðisþjónustu.
Fjáröflun hefst með stórhuga tónleikahaldi í Háskólabíó, miðvikudaginn 12. nóvember kl. 20. Það er ánægjulegt að margir af þekktustu tónlistarmönnum og bestu skemmtikröftum þjóðarinnar hafa ákveðið að leggja málefninu lið og gefa til þess vinnu sína. Verkefnastjóri er Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir. Það er nýjung að samfara tónlist og listviðburðum verður einnig fræðsla um geðheilbrigði, forvarnir og eflingu.
Aðgangseyrir er kr. 2.000. Miðasala verður í verslunum LYFJU á höfuðborgarsvæðinu og hefst á laugardag. Miðar verða einnig seldir við innganginn frá kl 16.
DAGSKRÁ STYRKTARTÓNLEIKANNA
19:30 Húsið opnar 20:00 Dagskrá hefst - Helga Braga og Pétur Jóhann 20:05 Ólafur Þór Ævarsson, læknir og formaður stjórnar sjóðsins 20:15 Ragnheiður Gröndal 20:20 Í svörtum fötum 20:30 Heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson 20:35 Hljómsveitin Buff & Þórhallur Sigurðsson-Laddi 20:50 Hera Björk 20:55 Geir Ólafs 21:00 Sr. Pálmi Matthíasson, stjórnarmaður sjóðsins. 21:05 Hlé 21:15 Strákarnir frá Duett.is, Davíð Ólafs og Stefán Helgi 21:25 Klaufarnir 21:30 Sigurður Guðmundsson, læknir og stjórnarmaður sjóðsins 21:35 Magni 21:45 Páll Rósinkranz 22:00 Sálin hans Jóns míns lokar tónleikunum
Innilegustu þakkir til þessarra frábæru tónlistarmanna og skemmtikrafta og allra sem að undirbúningi tónleikana komu. Aðal stuðningsaðilar eru Actavis, Landsnet og Heilbrigðisráðuneytið.
Þeim sem styðja vilja sjóðinn með upphæð að eigin vali er bent á að auðveldast er að nota heimabankann: Bankareikningur nr.1158-26-1300, Kennitala 621008-0990
|