Vefur Al˛ingis Senda tˆlvupÛst til Siv Vefur FramsÛknarflokksins Ganga Ì flokkinn VefslÛir fiingm·l LÌf og starf ¡lit DagbÛkin Greinar og rÊur Pistlar Myndir
    prentvæn útgáfa

    Ráðherrar af þingi


    13/10/2004

    Frumvarpi mínu og meðflutningsmanna um að ráðherrar megi ekki vera þingmenn samhliða ráðherradómi var dreift í gær 12/10/2004 á Alþingi. Svipað frumvarp flutti ég á sínum tíma á Alþingi. Eftir reynslu mína af bæði störfum sem þingmaður og ráðherra er ég enn sannfærðari en áður um að rétt sé að taka þetta skref í stjórnsýslu okkar.

    Hér er frumvarpið:

    131. löggjafarþing 2004–2005.
    Þskj. 177 — 177. mál.

    Frumvarp til stjórnarskipunarlaga
    um breyting á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum.


    Flm.: Siv Friðleifsdóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Margrét Frímannsdóttir,

    Pétur H. Blöndal, Gunnar Örlygsson.

    1. gr.

    Síðari málsliður 51. gr. stjórnarskrárinnar orðast svo: Sé þingmaður skipaður ráðherra skal hann víkja úr þingsæti á meðan hann gegnir ráðherradómi og tekur varamaður hans sætið á meðan.


    2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.


    Greinargerð.

    Frumvarp sama efnis var flutt á 123. löggjafarþingi 1998–1999 af Siv Friðleifsdóttur. Jafnframt flutti Kristinn H. Gunnarsson frumvarp á 130. löggjafarþingi 2003–2004 þar sem m.a. var lögð til sambærileg breyting.

    Íslenskt réttarríki byggist á hugmyndum franskra umbótasinna á 18. öld um greiningu ríkisvaldsins í þrjá þætti, löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald, sbr. 2. gr. stjórnarskrárinnar. Hugsunin með slíkri skiptingu var að hver valdhafi um sig takmarkaði vald hins, en hver hluti ríkisvaldsins fyrir sig átti þó að vera sem sjálfstæðastur.

    Þó að stjórnarskrá okkar byggist á þessum hugmyndum gerir hún samt ráð fyrir að ráðherrar geti jafnframt verið alþingismenn. Aðskilnaður löggjafarvalds og framkvæmdarvalds er því í raun ekki eins mikill og 2. gr. stjórnarskrárinnar áskilur.

    Sagt er að stærsti hluti hinnar eiginlegu vinnu við þingmál fari fram í þingnefndum. Sú hefð hefur hins vegar skapast að ráðherrar eiga ekki sæti í nefndum þingsins. Núverandi fyrirkomulag leiðir því til þess að um sjötti hluti þingheims er ekki nema að litlu leyti virkur í þingstarfinu.

    Með þessu frumvarpi til stjórnarskipunarlaga er lagt til að ráðherrar geti ekki átt sæti á þingi þann tíma er þeir gegna ráðherradómi. Jafnhliða þeirri breytingu, sem frumvarpið mælir fyrir um, telja flutningsmenn rétt að skoða hvort ástæða sé til að fækka þingmönnum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin verði sú að um leið og forseti hefur skipað alþingismann ráðherra taki varamaður sæti ráðherrans á þingi. Ráðherra á hins vegar rétt á þingsæti sínu aftur jafnskjótt og hann lætur af ráðherradómi ef þing hefur ekki verið rofið og boðað til nýrra kosninga.

    Í dag er staðan sú að ráðherra getur sagt af sér þingmennsku og látið varamann taka sæti sitt í staðinn. Mjög ólíklegt er að ráðherra mundi gera slíkt að öllu óbreyttu, því að ef hann missti ráðherraembættið aftur þá ætti hann ekki afturkvæmt í þingmennskuna fyrr en að afloknum kosningum, þ.e. ef hann næði kjöri, þannig að við núverandi aðstæður hafa ráðherrar ekki um góða kosti að velja í þessu sambandi. Með þessu móti munu allir sem sæti eiga á Alþingi hverju sinni geta sinnt þeim skyldum sem á þeim hvíla. Hins vegar er áfram gert ráð fyrir að ráðherrar geti tekið þátt í umræðum á þingi og svarað fyrir spurnum samkvæmt nánari reglum sem settar yrðu þar um í þingsköpum.

    Sú breyting á stjórnarskránni, sem hér er lögð til, á sér hliðstæðu bæði í Noregi og Svíþjóð þar sem slíkt fyrirkomulag þykir hafa gefist mjög vel.

    Frumvarpið er í anda stefnu Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar. Á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins var til að mynda gerð svofelld samþykkt í tengslum við umfjöllun um stjórnsýslu ríkisins: „Auka þarf þrískiptingu ríkisvaldsins. Í því skyni skal stefnt að því að ráðherrar ríkisstjórnar afsali sér þingmennsku“. Í stefnuskrá Framsóknarflokksins 2003 segir enn fremur í kaflanum um skilvirka og réttláta stjórnsýslu: „Skilja verður að fullu á milli framkvæmdar- og löggjafarvalds og mun það auka lýðræði og aðhald innan stjórnsýslunnar. Ráðherrar gegni ekki jafnframt þingmannsstarfi.“

    Þá segir eftirfarandi m.a. í stjórnmálaályktun landsfundar Samfylkingarinnar 2003 um lýðræðismál: „Ráðherrar eiga að segja af sér þingmennsku á meðan þeir þjóna sem framkvæmdarvaldshafar og gera á landið að einu kjördæmi.“