Miðvikudagur 18. júní
Kl.6:15 sótti ég Húnboga, Elínu og Ingibjörgu Siv, en þau komu frá Bandaríkjunum í morgunsárið.
Þriðjudagur 17. júní
Kl.11 var hátíðarmessa í Seltjarnarneskirkju í samvinnu við Rótarýklúbb Seltjarnarness.
Daniel Teague, forseti klúbbsins, hélt hátíðarræðuna í kirkjunni.
Að messu lokinni sá klúbburinn um kaffiveitingar.
Mánudagur 16. júní
Dagurinn fór í að undirbúa fundi í ráðuneytinu.
Sunnudagur 15. júní
Kl.11 hófst ráðherrapanell þar sem jafnréttisráðherrar Norðurlandanna sátu fyrir svörum.
Kl.13 hófst lokaathöfn Nordisk Forum þar sem sömu ráðherrar tóku við lokayfirlýsingu ráðstefnunnar.
Þar sem búið var að fella flug okkar niður á morgun flýttum við för og flugum heim til Íslands í gegnum Kaupmannahöfn kl.19:45.
Laugardagur 14. júní
Dagurinn fór í að sækja fundi á Nordisk Forum jafnréttisráðstefnunni.
Heimsóttum við líka marga bása á sýningunni, m.a. bás Kvennréttindafélagsins og Kvenfélagasambands Íslands.
Um kvöldið gafst tími til að skokka meðfram ströndinni við Malmö í sólskininu.