Föstudagur 13. júní
Kl.12:00-13:30 stýrði ég málþingi sem Jafnréttisstofa hélt í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Danmerkur og Likestillingsombudet í Noregi.
Málþingið fjallaði um hatursorðræðu, ofbeldi og áreitni.
Eftir þingið var voru Eygló lögð orð í munn í íslensku fjölmiðlum sem hún lét aldrei falla.
Seinni hluti dags hjá henni fór í að leiðrétta þá umfjöllun í fjölmiðlum.
Um kvöldið var hátíðarkvöldverður í boði borgarstjórnar Malmö í ráðhúsinu þeirra.
Fimmtudagur 12. júní
Um morguninn var starfsmannafundur í ráðuneytinu.
Kl.13:15 var flugum við Eygló Harðardóttir til Kaupmannahafnar og fórum þaðan til Malmö.
Miðvikudagur 11. júní
Dagurinn fór m. a. í að undirbúa þátttöku í kvennaráðstefnunni Nordisk Forum í Malmö.
Þriðjudagur 10. júní
Kl.12 var fundur vegna hátíðarhalda á næsta ári þegar 100 ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt.
Mánudagur 9. júní
Dagurinn fór í tiltektir og fleira.
Skrapp seinni partinn að skoða grænmetisgarðinn hjá Húna og Elínu.
Sunnudagur 8. júní
Veðrið var frábært í dag og fór hitinn upp í 26 gráður á Suðurlandinu.
Um kvöldið lá leiðin heim.
Laugardagur 7. júní
Í dag lá leiðin í sumarbústað á Suðurlandi til að njóta veðurblíðunnar.