Föstudagur 30. maí
Eftir vinnu gekk ég með Guðmundi Einarssyni að afhenda framsóknargrænmeti á Seltjarnarnesi.
Fimmtudagur 29. maí
Eftir vinnu gekk ég með Davíð Jack að afhenda framsóknargrænmeti á Seltjarnarnesi.
Miðvikudagur 28. maí
Eftir vinnu var ég með Ágústi að afhenda framsóknarbækling fyrir framan Bónus í Hafnarfirði.
Þriðjudagur 27. maí
Eftir vinnu fór ég að afhenda framsóknargrænmeti með Írisi í blokkir í Kópavoginum.
Mánudagur 26. maí
Um kvöldið nýttist tíminn í að ganga í hús með Ágústi og Jenný í Hafnarfirði og afhenda framsóknargrænmeti og bækling.
Sunnudagur 25. maí
Ók suður í dag og fór norðurleiðina.
Laugardagur 24. maí
Í dag lá leiðin austur á Fáskrúðsfjörð með Hákon, en hann mun vinna þar í Loðnuvinnslunni í sumar eins og undanfarin sumur.
Á leiðinni snörluðum við á Höfn í Hornafirði.