Föstudagur 4. apríl
Dagurinn fór að hluta til í að lesa gögn og skýrslur um fátækt á Íslandi.
Fimmtudagur 3.apríl
Kl.10 stóð ég fyrir svokölluðum forfundi þar sem rætt var um starf nýja Landamærahindrunarráðsins.
Kl.13 var fundur með Íslandsdeild Norðurlandaráðs á Alþingi.
Kl.19:30 var móttaka, forsætisráðherra, vegna fundar kvenna sem eiga sæti á þjóðþingum.
Að móttöku lokinni var hátíðarkvöldverður í boði þeirra kvenna sem eru ráðherrar í ríkisstjórninni.
Miðvikudagur 2. apríl
Kl.9:30 vr fundur um norrænu velferðarvaktina.
Kl.14:30 var símafundur með starfsfólki Landamærahindrunarráðsins í Kaupmannahöfn.
Þriðjudagur 1. apríl
Kl.12 var fundur í nefnd sem er að undirbúa hátíðarhöld í tengslum við 100 ára kosningarétt kvenna árið 2015.
Mánudagur 31. mars
Kl.11 hitti ég velferðarnefnd Alþingis til að ræða þingsályktun um mænuskaðamál.
Kl.14 var fundur í utanríkisráðuneytinu um hvernig koma má norrænu samstarfi betur á framfæri(branding) á Norðurlöndunum.
Sunnudagur 30. mars
Um eftirmiðdaginn fórum við Húni og Hákon út að snarla saman.
Laugardagur 29. mars
Seinni partinn lá leiðin út á land í skemmtiferð.