Föstudagur 14. mars
Kl.12 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.13-16 var námskeið, sem Halló Norðurlönd stóð fyrir, um landamærahindranir, en það var haldið í húsnæði Vinnumálastofunar.
Um kvöldið borðuðum við hjá Elínu og Ingibjörg Siv, en Húnbogi er erlendis.
Fimmtudagur 13. mars
Kl.9 mætti Ingólfur Gíslason í ráðuneytisskólann og flutti erindi um -konur í "karlastörfum"-.
Kl.13 lá leiðin upp í Efstaleiti að undribúa sjónvarpsupptöku með Boga Ágústssyni.
Kl.19 var hittingur í Stúdentakjallaranum þar sem við nokkur hittum Kalla, bekkjarfélaga okkar úr 6.-S í MR, en hann býr erlendis.
Miðvikudagur 12. mars
Kl.13 var lynch fundur á netinu þar sem ég fór yfir næstu verkefni í Landamærahindararáðinu ásamt starfsfólki Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.
Þriðjudagur 11. mars
Um morguninn tók ég í viðtal við Fréttablaðið vegna verkefna Landamærahindrunarráðsins.
Kl.13:30 hitti ég nemendur sem eru í lýðheilsunámi í Háskóla Íslands.
Mánudagur 10. mars
Í lok vinnudags lá leiðin á tengiliðafund í utanríkisráðuneytinu þar sem tengiliðir ráðuneyta sem halda utan um formennskuverkefni okkar Íslands í norrænu samstarfi hittust.
Sunnudagur 9. mars
Um miðjan daginn lá leiðin í kaffiboð.
Um kvöldið komu Ingibjörg Siv, Elín Björk, mamma og Hákon í mat.
Laugardagur 8. mars
Dagurinn fór m.a. í tiltektir.