Föstudagur 17. janúar
Kl.12 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness, en fyrirlesari var yngsti bróðir minn, Friðleifur Kr. Friðleifsson.
Hann fjallaði um minnistæð hlaup, en hann var kjörinn ofurhlaupari ársins 2013 í karlaflokki hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands.
Seinni part dags fór ég á ráðstefnu Velferðarvaktarinnar um fjölskyldustefnu.
Um kvöldið fór ég í kvennaveislu.
Fimmtudagur 16. janúar
Dagurinn var hefðbundinn í ráðuneytinu.
Um kvöldið aðstoðaði ég vinkonu mína með verkefni.
Miðvikudagur 15. janúar
Kl.12 hófst blaðamannafundur forsvarskvenna stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á Alþingi ásamt forsvarskonum Kvenréttindafélagsins, Kvenfélagasambands Íslands og Femínistafélags Íslands í Iðnó.
Á fundinum var kynnt átakið -Konur í forystusæti-, en átakið felur m. a. í sér facebookbylgju.
Fjöldi manns mætti á fundinn.
Þriðjudagur 14. janúar
Dagurinn fór í hefðbundinn undirbúning mála.
Í dag eru 12 ár síðan ég hóf að skrifa myndskreytta dagbók á heimasíðunni minni.
Myndirnar sem eru í dagbókinni eru nú 20.554 talsins.
Hér er mynd nr. 20.500, en hún var tekin í skírn Ingibjargar Sivjar þann 24. nóvember í fyrra.
Mánudagur 13. janúar
Fyrri part dags var fjarfundur ásamt embættismönnum í Kaupmannahöfn.
Sunnudagur 12. janúar
Dagurinn fór í stúss.
Laugardagur 11. janúar
Kl.11 hófst morgunkaffi framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.