Föstudagur 29. nóvember
Í dag fundaði ég með framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar, Dagfinn Höybråten, og starfsmönnum stjórnsýsluhindranaráðsins.
Fimmtudagur 28. nóvember
Í dag fundaði ég með skrifstofustjóra Norrænu ráðherranefndarinnar vegna komandi verkefna í stjórnsýsluhindranaráðinu.
Miðvikudagur 27. nóvember
Um morguninn var flug til Kaupmannahafnar.
Kl.14 hófst fundur með starfsmönnum skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar sem sinna stjórnsýsluhindranaráðinu.
Um áramótin mun ég taka við formennsku í því ráði.
Þriðjudagur 26. nóvember
Eftir vinnu hitti ég nokkra vini mína.
Um kvöldið kíkti ég á ömmustelpuna mína og pakkaði svo í tösku því á morgun liggur leiðin út á norrænan fund.
Mánudagur 25. nóvember
Um kvöldið hittumst nokkrir gamlir bekkjarfélagar úr Való.
Sunnudagur 24. nóvember
Kl.14 var skírnarathöfn í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ þar sem litla ömmustelpan mín, dóttir Húna og Elínar Bjarkar, var skírð.
Hún fékk afar fallegt nafn, Ingibjörg Siv.
Við ömmurnar vorum skírnarvottar.
Ingibjörg Siv var þæg og góð í allri athöfninni og mótmælti einungis smávægilega upp á punt þegar hún fékk vatnið á kollinn.
Að skírn lokinni var kaffisamsæti heima hjá Ingveldi og Tryggva.
Laugardagur 23. nóvember
Kl.9 var miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins framhaldið á Hótel Selfossi.
Fundinum lauk kl.17.
Seinni partinn undirbjó ég kökugerð vegna morgundagsins.