Föstudagur 11. október
Kl.12 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.17 er ég í beinni útsendingu á Rás 2 vegna starfs sjóðsins Þú getur!
Sjóðurinn vinnur gegn fordómum og veitir námsstyrki til einstaklinga sem eiga við geðrænan vanda að stríða.
Á morgun kl.20:40 sýnir Ríkissjónvarpið frá tónleikum sjóðsins sem voru haldnir í Hörpunni fyrir stuttu.
Þeir sem vilja styrkja sjóðinn geta hringt meðan á útsendingu stendur í síma 9071901, og styrkt um 1.000 kr, 9071903, styrkt um 3.000 kr. og 9071905 styrkt um 5.000 kr.
Fimmtudagur 10. október
Í dag er alþjóðageðheilbrigðisdagurinn.
Í tilefni hans úthlutaði stjórn Þú getur! 44 styrkjum að upphæð um 6 milljónir króna.
Styrkirnir eru veittir einstaklingum sem eiga við geðraskanir að stríða og eru námsstyrkir.
Miðvikudagur 9. október
Vann í gögnum og fór til tannlæknis.
Þriðjudagur 8. október
Vann í gögnum í dag.
Skrapp á flokksskrifstofuna.
Mánudagur 7. október
Í dag lá leiðin suður.
Kl.15:30 var fundur í nefnd sem undirbýr hátíðarhöld í tengslum við 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna árið 2015.
Sunnudagur 6.október
Dagurinn nýttist í tiltektir, göngu og heimsókn.
Laugardagur 5. október
Dagurinn nýttist í tiltektir og göngu.