Föstudagur 13. september
Dagurinn nýttist við veiðar.
Litla dóttir Elínar Bjarkar og Húnboga sem var með í för skemmti sér hið besta í veiðihúsinu.
Fimmtudagur 12. september
Í dag lá leiðin í veiði á Vesturlandið.
Miðvikudagur 11. september
Kl.9 var fundur í dómnefnd Norrænu umhverfisverðlaunanna.
Seinni partin var flug til Stokkhólms.
Þriðjudagur 10. september
Kl.10:40 var flug til Gotlands.
Þar er fundur í dómnefnd Norrænu umhverfisverðlaunanna.
Mánudagur 9. september
Kl.7:30 var flug til Stokkhólms.
Sunnudagur 8. september
Nýtti daginn í tölvuvinnu og í að lesa gögn vegna norrænu umhverfisverðlaunanna, en ég er annar tveggja fulltrúa Íslands í dómnefnd þeirra.
Laugardagur 7. september
Um morguninn lá leiðin í kaffi framsóknarmanna á Digranesveginum í Kópavogi.
Seinni partur dags nýttist í að tína sveppi og steikja.