Föstudagur 1. febrúar
Kl.12 stýrði ég fundi í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Fimmtudagur 31. janúar
Kl.8:45 hófst fundur í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis.
Kl.18:30 hittist framboðslisti framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi í súpu í aðstöðu framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Kl.20 hófst aukakjördæmisþing á sama stað þar sem við samþykktum framboðslistann endanlega.
Miðvikudagur 30. janúar
Dagurinn fór að mestu í að sinna flokksstarfi.
Þriðjudagur 29. janúar
Kl.8 hófst fundur í flokkahópi miðjumanna í Norðurlandaráði í Hörpunni þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, útskýrði niðurstöðuna í icesavedómnum.
Kl.10 var fundur vegna vinnu við löggæsluáætlun.
Kl.13:30-17:15 stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.19 var hátíðarkvöldverður með norrænu þingmönnunum í Norðurljósasalnum í Hörpunni.
Mánudagur 28. janúar
Kl.11 var þingflokksfundur vegna niðurstöðu EFTA dómstólsins í icesavemálinu, en dómurinn féll Íslandi í hag.
Þar með er langri og strangri sögu lokið og öllum létt.
Kl.14 var aftur þingflokksfundur um icesavedóminn og nú með hluta lögfræðingateymisins sem vann málið fyrir Íslands hönd.
Kl.15 hófst þingfundur þar sem dómurinn var ræddur.
Kl.16:00-17:15 var fundur í stjórn flokkshóps miðjumanna í Norðurlandaráði í Hörpunni.
Kl.17:30-19:00 var fundur í flokkahópi miðjumanna í Norðurlandaráði á sama stað.
Sunnudagur 27. janúar
Dagurinn fór m. a. í að lesa gögn fyrir komandi vinnuviku.
Laugardagur 26. janúar
Kl.10:30 vorum við Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gestir á fundi framsóknarmanna á Akureyri.
Þar ræddum við komandi flokksþing, stjórnmálastöðuna og fleira.