Föstudagur 21. desember
Kl.10 hófust atkvæðagreiðslur á Alþingi.
Kl.12 stýrði ég jólafundi Rótarýklúbbs Seltjarnarness.
Fundurinn var hátíðlegur og skemmtilegur,en tæplega 100 manns sóttu hann.
Um kvöldið skrapp ég í útskriftarveislu og svo í atkvæðagreiðslur í Alþingi.
Atkvæðagreiðslur stóðu til klukkan rúmlega þrjú um nóttina.
Var lögst til svefns um kl.3:30.
Atkvæðagreiðslurnar voru sögulegar því ríkisstjórnin varð þrisvar undir ásamt því að forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, stóð yfir Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra, og lét hann breyta atkvæði sínu.
Fimmtudagur 20. desember
Kl.9:30 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Síðan hófust atkvæðagreiðslur á Alþingi vegna fjárlaganna.
Miðvikudagur 19. desember
Kl.9:30 var fundur í innanríkisráðuneytinu vegna vinnslu löggæsluáætlunar.
Kl.11 hófust atkvæðagreiðslur á Alþingi.
Kl.13 var fundur í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis.
Kl.18 var jólaboð Siggu, frænku og Golla.
Þriðjudagur 18. desember
Kl.9 var fundur allsherjar- og menntamálanefndar á Alþingi.
Kl.11 var undirbúningsfundur vegna vinnslu löggæsluáætlunar.
Um kvöldið var fjölskylduboð.
Mánudagur 17. desember
Kl.11 var ég í viðtali vegna ritgerðar nema í Listaháskóla Íslands.
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst þingfundur.
Kl.20:30 var fundur framsóknarmanna á Flúðum þar sem frambjóðendur í Suðurkjördæmi kynntu sig.
Sunnudagur 16. desember
Um miðjan daginn lá leiðin suður.
Laugardagur 15. desember
Dagurinn nýttist á Siglufirði.