Föstudagur 25. september
Skrapp í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Kl.12:15-13:30 var rótarýfundur þar sem Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, var með starfsgreinaerindi.
Kl.17 fór ég í opið hús í tilefni 50 ára afmælis Félags sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi og færði þeim blómvönd fyrir hönd Félags framsóknarmanna á Seltjarnarnesi.
Um kvöldið borðuðum við cous cous kjúkling.
Í dag fékk ég lánaðar tvær spennandi bækur hjá mömmu til að lesa þegar stund gefst.
Fimmtudagur 24. september
Kl.10:30-12:00 tók ég viðtöl á Alþingi.
Kl.12:15-13:30 var rótarýfundur á Hótel Sögu.
Kl.16-20 nýtist tíminn í EHÍ.
Kl.20 hófst aðalfundur Framsóknarfélags Seltjarnarness.
Miðvikudagur 23. september
Kl.9:30-18:00 var haustfundur forsætisnefndar Alþingis.
Á fundinum ræddum við m. a. starfsáætlun þingsins og eftirlitshlutverk þess.
Þriðjudagur 22. september
Fyrri part dags vorum við að fræsa veggi tl að koma fyrir eldhúsljósi.
Kl.16-20 nýttist tíminn í EHÍ.
Um kvöldið héldum við áfram að vinna í eldhúsinu.
Mánudagur 21. september
Kl.10 var fundur Íslandsdeildar Norðurlandaráðs með Sinikku Bohlin, forseta Norðurlandaráðs.
Kl.12:30 sýndi ég 30 sænskum fyrrverandi þingmönnum Alþingi.
Kl.13:00-16:30 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.17 var tími fyrir sjósund, en í dag var hitastig sjávar 12,5 gráða.
Sunnudagur 20. september
Kl.9 var lagt af stað úr Landbrotinu.
Eftir stutt stopp í Vík í Mýrdal skoðuðum við Reynisfjöru.
Síðan lá leiðin að Sólheimajökli og þaðan á byggðasafnið á Skógum þar sem Þórður Tómasson tók á móti okkur.
Eftir að hafa borðað á Hvolsvelli ókum við áfram að höfðuborgarsvæðinu með stuttu stoppi við Urriðafoss í Þjórsá.
Vorum við komin til Reykjavíkur um kl.17.
Lauk þar með stórskemmtilegri og fróðlegri 6 daga hringferð um landið.
Um kvöldið fór fjölskyldan í afmælisboð til Lenu Snorradóttur sem er nú orðin 22 ára.
Laugardagur 19. september
Kl.9 var lagt af stað frá Egilstöðum.
Fyrst stoppuðum við stuttlega í botni Berufjarðar en síðan á Djúpavogi.
Þaðan ókum við að Eystrahorni og gerðum stuttan stans við Hvalsnesvitann.
Í hádeginu borðuðum við á Höfn í Hornafirði.
Síðan var ekið að Breiðamerkurlóninu í blíðskaparveðri.
Seinni partinn nýttum við í Skaftafelli þar sem við skoðuðum m.a. Svartafoss og gestastofuna.
Um kvöldið komumst við á gististað, Hótel Laka, í Landbrotinu neðan Kirkjubæjarklausturs.
Þar fengum við höfðinglegar móttökur.