Föstudagur 13. júlí
Kl.12 stýrði ég fundi Rótarýklúbbs Seltjarnarness, en gestur fundarins var Sólveig Pálsdóttir, leikari og rithöfundur.
Hún kynnti sakamálabók sína, Leikarinn.
Fimmtudagur 12. júlí
Um morguninn fór Húni í viðtal ásamt Tómasi Guðbjartssyni, hjarta- og lungnalækni, á Bylgjuna til að ræða um rannsókn sína á brottnámi lungnavefs.
Miðvikudagur 11. júlí
Dagurinn fór í útréttingar.
Þriðjudagur 10. júlí
Hluti dagsins nýttist í góða göngu fyrir austan fjall í rjómablíðu.
Mánudagur 9. júlí
Dagurinn fór að mestu í að þvo útivistarföt og ganga frá eftir helgina.
Sunnudagur 8. júlí
Helgin nýttist úti á landsbyggðinni.
Laugardagur 7. júlí
Helgin nýttist úti á landsbyggðinni.